Aðal Kerry King leggur land undir fót heima í Bandaríkjunum, ásamt bandi sínu, í blábyrjun næsta árs og verða þeir félagar þar í öndvegi, studdir af Municipal Waste og Alien Weaponry. Fyrr á þessu ári studdu King og félagar við Mastodon og Lamb of…
Kerry King hefur verið að troða upp með Slayer í endurkomu bandsins ódauðlega.
Kerry King hefur verið að troða upp með Slayer í endurkomu bandsins ódauðlega. — AFP/Ethan Miller

Aðal Kerry King leggur land undir fót heima í Bandaríkjunum, ásamt bandi sínu, í blábyrjun næsta árs og verða þeir félagar þar í öndvegi, studdir af Municipal Waste og Alien Weaponry. Fyrr á þessu ári studdu King og félagar við Mastodon og Lamb of God á túr en nú má reikna með lengri efnisskrá þar sem þeir verða aðalnúmerið. „Æfingar hefjast í byrjun nóvember og ef til vill hendum við inn einu Slayer-lagi eða svo og hver veit nema við lærum líka eina eða tvær ábreiður,“ hefur málmgagnið Blabbermouth.net eftir King.