„Það er alveg óhætt að segja að þetta sé afar skemmtilegt verkefni,“ segir Árni Hermannsson framkvæmdastjóri Loftleiða í samtali við mbl.is en Loftleiðir, sem eru leiguflugshluti Icelandair, sáu um flug enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United í …
„Það er alveg óhætt að segja að þetta sé afar skemmtilegt verkefni,“ segir Árni Hermannsson framkvæmdastjóri Loftleiða í samtali við mbl.is en Loftleiðir, sem eru leiguflugshluti Icelandair, sáu um flug enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United í ferðum félagsins milli Manchester og Porto í vikunni.
Flugvélin sem flaug með liðið til Porto á miðvikudag er búin 80 sætum í viðskiptafarrými en í gær ferðaðist United-liðið með vélinni aftur til Manchester.