Sigur Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri á móti í Arkansas.
Sigur Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri á móti í Arkansas. — Morgunblaðið/Óttar

Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur úr GKG, bar sigur úr býtum á Blessings Collegiate Invitational-mótinu um síðustu helgi, sem er hluti af keppni í efstu deild NCAA-háskólagolfsins í Bandaríkjunum. Hann lék hringina þrjá á 71 höggi, 67 höggum og 71 höggi, eða sjö höggum undir pari vallar í Fayetteville. Gunnlaugur Árni hóf nám í haust í Louisiana State University, LSU, í Baton Rouge í Louisiana-ríki og er á sínu fyrsta ári með liðinu.