„Þessi leikur leggst ótrúlega vel í okkur. Við erum gríðarlega spennt, öll Valsfjölskyldan, að fá að takast á við svona stóran leik. Þetta er í raun og veru það sem við æfum fyrir alla daga, að fá að spila svona stóra leiki sem skipta okkur…
Valur Elísa Viðarsdóttir hefur lyft Íslandsbikarnum þrjú ár í röð.
Valur Elísa Viðarsdóttir hefur lyft Íslandsbikarnum þrjú ár í röð. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

„Þessi leikur leggst ótrúlega vel í okkur. Við erum gríðarlega spennt, öll Valsfjölskyldan, að fá að takast á við svona stóran leik. Þetta er í raun og veru það sem við æfum fyrir alla daga, að fá að spila svona stóra leiki sem skipta okkur svo rosalega miklu máli,“ sagði Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals í samtali við Morgunblaðið fyrir úrslitaleikinn gegn Blikum.

Undanfarin ár hefur Valur verið búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn áður en í lokaumferðina er komið. Að þessu sinni þarf Valur hins vegar á sigri að halda í síðustu umferðinni til þess að vinna titilinn.

„Ég held að þetta sé öðruvísi áskorun fyrir liðið og kannski eitt af þeim skrefum sem liðið þarf að taka til þess að verða enn betra á næstu árum. Að prófa að takast á við keppnina á þennan hátt.

...