Titill á sýningu er titill á einkasýningu Arnar Alexanders Ámundasonar í Skaftfelli, listamiðstöð Austurlands, sem opnuð verður í dag, 5. október, kl. 17. Leiðsagnir með listamanninum verða dagana 25.-27
Fals Örn vinnur með falsdóma.
Fals Örn vinnur með falsdóma.

Titill á sýningu er titill á einkasýningu Arnar Alexanders Ámundasonar í Skaftfelli, listamiðstöð Austurlands, sem opnuð verður í dag, 5. október, kl. 17. Leiðsagnir með listamanninum verða dagana 25.-27. október en sýningin stendur til 3. nóvember. „Þessi sýning er ekki með neina fagurfræði, engan leik með liti eða form. Það eru engar áleitnar, tilvistarlegar spurningar eða skilaboð til áhorfandans um samfélagsleg vandamál eða náttúruvá,“ segir í tilkynningu.