Cate Blanchett fer með aðalhlutverkið.
Cate Blanchett fer með aðalhlutverkið. — AFP/Ander Gillenea

Drama Cate Blanchett fer með aðalhlutverkið í nýjum dramaþáttum úr smiðju Alfonsos Cuaróns, Disclaimer. Þar leikur hún virta blaðakonu sem fær veður af því að nágranni hennar sitji á handriti að bók sem gæti afhjúpað fortíð hennar og lagt feril hennar í rúst. En byggjast þær upplýsingar á áreiðanlegum heimildum eða eru þær hugarburður? Cuarón fer með okkur fram og aftur í tíma til að varpa ljósi á það. Í öðrum helstu hlutverkum eru þungavigtarfólk á borð við Kevin Kline, Lesley Manville og Sacha Baron Cohen. Þættirnir eru byggðir á metsölubók Renée Knight frá 2015 og hefja göngu sína á streymisveitunni Apple TV+ 11. október.