Ozzy Osbourne hress að vanda.
Ozzy Osbourne hress að vanda. — AFP

Hrollur Gestir á hryllingsmyndaráðstefnunni Son Of Monsterpalooza í Burbank í Kaliforníu um næstu helgi eiga von á góðu en enginn annar en Myrkrahöfðinginn sjálfur, Ozzy Osbourne, verður á svæðinu ásamt spúsu sinni, Sharon, og börnum þeirra, Jack og Kelly. Býðst gestum að heilsa upp á fjölskylduna og fá af sér mynd með henni tekna af fagmanni. Að vísu þarf fyrst að festa kaup á aðgangspassa sem kostar 699 dollara eða sem samsvarar um 95 þúsund krónum en fáir munu líklega telja það eftir sér. Son of Monsterpalooza hefur verið haldin frá árinu 2012 og í ár verða yfir 150 básar á svæðinu, þar sem hitt og þetta sem tengist hryllingsmyndum verður til sýnis.