50 ára Ólöf Ásta er Siglfirðingur en býr á Akureyri. Hún er eigandi sælkeraverslunarinnar Fiskkompaní ásamt manni sínum. Áhugamálin eru fjölskyldan, vinnan og vinirnir. Ólöf Ásta stundar einnig alls konar útivist.


Fjölskylda Eiginmaður Ólafar Ástu er Ragnar Haukur Hauksson, f. 1976, Siglfirðingur, en þau fögnuðu 30 árum saman í sumar og hafa verið gift í 18 ár. Börn þeirra eru Alexander Örn Kristjánsson, f. 1993, María Lillý Ragnarsdóttir, f. 1998, og Ragnar Óli Ragnarsson, f. 2003. Dóttursonur Ólafar Ástu og Ragnars er Líam Gabríel, f. 2022. Foreldrar Ólafar Ástu eru hjónin Salmann Helgi Kristjánsson, Bolvíkingur, f. 1948, og Marsilía Jónsdóttir, Siglfirðingur, f. 1950. Þau hafa alla sína hjúskapartíð búið á Siglufirði.