A! gjörningahátíð verður haldin í tíunda sinn á Akureyri dagana 10.-12. október. Frítt er á alla viðburði hátíðarinnar sem mun vera sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða úr öllum listgreinum
Rauður Heather Sincavage er meðal þeirra listamanna sem fremja gjörninga á A! á Akureyri.
Rauður Heather Sincavage er meðal þeirra listamanna sem fremja gjörninga á A! á Akureyri.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

A! gjörningahátíð verður haldin í tíunda sinn á Akureyri dagana 10.-12. október. Frítt er á alla viðburði hátíðarinnar sem mun vera sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða úr öllum listgreinum. Sérstök dómnefnd sá um að velja verk á hátíðina, gjörninga af ýmsu tagi en þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn auk reyndra og þekktra gjörningalistamanna.

Þátttakendur að þessu sinni eru þau Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Sarah Aviaja Hammeken, Kraftverk (Anna Kolfinna

...