Leikjahæstur Guðmundur Karl lék 411 leiki fyrir Fjölni á ferlinum.
Leikjahæstur Guðmundur Karl lék 411 leiki fyrir Fjölni á ferlinum. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Karl Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna, en hann er 33 ára gamall. Guðmundur er leikjahæsti leikmaður í sögu Fjölnis með 411 leiki í keppnum á vegum KSÍ, þar sem hann hefur skorað 61 mark. Alls lék hann 126 leiki í efstu deild, þar sem hann skoraði 12 mörk, og þá lék hann 188 leiki í 1. deildinni. Hann lék allan ferilinn með Fjölni, að undanskildu árinu 2017 er hann lék með FH.