Knattspyrnuþjálfarinn Gunnar Magnús Jónsson verður ekki áfram þjálfari kvennaliðs Fylkis, en stjórn félagsins ákvað að framlengja ekki samning hans sem rann út eftir tímabilið. Gunnar staðfesti tíðindin við Fótbolta.net í gær.
Hann kom Fylki upp úr 1. deild á síðustu leiktíð en tókst ekki að halda liðinu uppi á nýliðinni leiktíð, þar sem það endaði í botnsætinu með aðeins 13 stig eftir 21 leik.