Þjóðverjinn Jürgen Klopp byrjar í nýrri vinnu um næstu áramót en hann hætti störfum hjá Liverpool í maí. Hann hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá orkudrykkjafyrirtækinu Red Bull, sem á fjögur knattspyrnufélög í jafnmörgum löndum; RB…
Breyting Jürgen Klopp mun starfa fyrir fjögur félög í eigu Red Bull.
Breyting Jürgen Klopp mun starfa fyrir fjögur félög í eigu Red Bull. — AFP/Tobias Schwartz

Þjóðverjinn Jürgen Klopp byrjar í nýrri vinnu um næstu áramót en hann hætti störfum hjá Liverpool í maí. Hann hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá orkudrykkjafyrirtækinu Red Bull, sem á fjögur knattspyrnufélög í jafnmörgum löndum; RB Leipzig í Þýskalandi, Salzburg í Austurríki, New York RB í Bandaríkjunum og Bragantino í Brasilíu. Klopp verður ráðgjafi varðandi þjálfun og hugmyndafræði og sér um þróun og kaup á ungum leikmönnum.