Það var ekkert til sparað í galakvöldverðinum í Kristjánsborgarhöll í tilefni af opinberri heimsóknar forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til Danmerkur. Halla skartaði gylltum skreyttum síðkjól frá breska fatahönnuðinum Jenny Packham
Forseti Íslands Klæddist glæsilegum kjól frá Jenny Packham sem kostar 642.000 kr.
Forseti Íslands Klæddist glæsilegum kjól frá Jenny Packham sem kostar 642.000 kr.

Edda Gunnlaugsdóttir

eddag@mbl.is

Það var ekkert til sparað í galakvöldverðinum í Kristjánsborgarhöll í tilefni af opinberri heimsóknar forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til Danmerkur. Halla skartaði gylltum skreyttum síðkjól frá breska fatahönnuðinum Jenny Packham. Kjóllinn var alsettur kristöllum og pallíettum sem virtist vera þema kvöldsins.

María drottning klæddist dökkbláum kjól skreyttum pallíettum og steinum í sama lit. Hún bar demantsskreytta kórónu og hálsmen með eyrnalokka í stíl. Á öðrum gestum mátti sjá steinaskreyttar hárspangir, hangandi demantseyrnalokka og pallíettukjóla. Þemað átti við um kjólana, fylgihlutina, skart og skóbúnað.