Friðný G. Ármann fæddist 12. desember 1928. Hún lést 2. september 2024.

Friðný var jarðsungin 17. september 2024.

Elsku Fía frænka lést aðfaranótt 2. september sl., tæplega 96 ára að aldri, eftir skammvinn veikindi.

Fía var ekki bara frænka okkar, heldur var hún okkur sem önnur amma, og það voru ófáar stundirnar sem við systur áttum hjá henni og Badda uppi á Akranesi. Þegar við vorum litlar var það alltaf ferðalag að fara upp á Skaga, annaðhvort með Akraborginni eða í löngum bíltúr, og okkur þótti það svo spennandi. Ef Fía var með í för var að sjálfsögðu sungið alla leiðina þar sem Fíu fannst fátt skemmtilegra en að syngja. Þegar til Fíu var komið biðu okkar alltaf veitingar eins og henni einni var lagið og þar gátum við systur fengið að dansa um og að gera æfingar í stofunni hjá henni. Hún var svo

...