Knattspyrnukonan reynda Berglind Björg Þorvaldsdóttir leikur ekki áfram með Val þótt hún hafi gert tveggja ára samning við félagið í vor. Valur hefur sagt upp samningnum við hana. Berglind lék 13 af 23 leikjum Vals í Bestu deildinni í ár, aðeins tvo þeirra í byrjunarliði, og skoraði fjögur mörk.

Bjarni Þórður Halldórsson verður næsti þjálfari kvennaliðs Fylkis í knattspyrnu. Gunnar Magnús Jónsson verður ekki áfram með liðið en Fylkismenn ákváðu að skipta um þjálfara eftir að liðið féll úr Bestu deildinni í haust.

Hollenska liðið Limax sigraði Hamar, 3:0, í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Áskorendabikars karla í blaki sem fram fór á heimavelli Limax í belgíska bænum Maaseik í gær. Hrinurnar enduðu 25:20, 25:10 og 25:20. Seinni leikur liðanna fer fram í Digranesi í Kópavogi

...