85 ára Ellert er Reykvíkingur, ólst fyrst upp á Bollagötunni en flutti sjö ára í Sörlaskjól 1 í Vesturbænum og hefur mestalla ævina búið í Vesturbænum. Árið 1996 keyptu Ellert og Ágústa kona hans fjölskylduhúsið í Sörlaskjóli 1 og hafa búið þar síðan.

Embættisprófi í lögfræði lauk Ellert frá HÍ 1966 og öðlaðist hann lögmannsréttindi sama ár. Ellert var blaðamaður á Vísi, vann á málflutningsskrifstofu Eyjólfs K. Jónssonar og fleiri 1965 og 1966, var skrifstofustjóri borgarverkfræðings 1966-71, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins 1971-79 og 1983-87, alþingismaður Samfylkingarinnar 2007-2009 og hefur verið varaþingmaður, síðast árið 2019. Hann var ritstjóri Vísis og DV 1980-95, formaður KSÍ 1973-89, forseti ÍSÍ 1991-97 og forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands 1997-2006.

Ellert var formaður Íslenskrar

...