Píanóleikarinn og ­söngkonan Sigurdís heldur tónleika í Djúpinu, að Hafnarstræti 15, í kvöld kl. 20.30. Ásamt henni koma fram Matthías Hemstock á trommur og Birgir Steinn á bassa. Sigurdís samdi alla tónlistina, en hún lauk kandídatsprófi í…

Píanóleikarinn og ­söngkonan Sigurdís heldur tónleika í Djúpinu, að Hafnarstræti 15, í kvöld kl. 20.30. Ásamt henni koma fram Matthías Hemstock á trommur og Birgir Steinn á bassa. Sigurdís samdi alla tónlistina, en hún lauk kandídatsprófi í tónsmíðum og djasspíanóleik frá Syddansk Musikkonservatorium í Danmörku 2023. „Eftir að hafa búið í Danmörku í sjö ár átta ég mig alltaf betur og betur á því hversu margs ég sakna við Ísland og íslenska náttúru, “ segir Sigurdís um innblásturinn að tónlistinni.