Guðlaugur Tryggvi Karlsson fæddist í Reykjavík 9. september 1943. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 22. september 2024.

Hann var sonur hjónanna Guðnýjar Guðlaugsdóttur, f. 16.4. 1912, d. 20.7. 1997, og Karls I. Jónassonar, f. 15.6. 1900, d. 18.10. 1952. Guðlaugur átti eina eldri systur, Guðríði, f. 24.4. 1938, d. 9.6. 2019.

Guðlaugur giftist ungur skólaystur sinni Margréti Valdimarsdóttur meinatækni og síðar giftist hann Vigdísi Bjarnadóttir fv. deildarstjóra. Þau skildu. Börn hans og Margrétar eru: 1) Valdimar Karl, f. 5.3. 1962. Eiginkona hans er Þuríður Ágústsdóttir og eiga þau fjögur börn, Þorstein Inga, Tryggva Karl, Kristin Örn og Margréti Ástu. 2) Karl Höskuldur, f. 10.9. 1966. Eiginkona hans er Ingibjörg Magnúsdóttur og eiga þau þrjár dætur saman, Jónínu Þórdísi, Sigrúnu Guðnýju og Guðrúnu Margréti. Fyrir átti Karl Höskuldur

...