Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mátti þola vont tap, 0:2, fyrir Litáen í sjöundu umferð I-riðils undankeppni EM 2025 í knattspyrnu á Víkingsvelli í gær. Tapið þýðir að Ísland á ekki lengur neinn möguleika á því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í Slóvakíu næsta sumar. Einstaklingsmistök urðu íslenska liðinu að falli í gær auk þess sem spilamennskan var ekki nægilega góð. » 27