Haraldur Þór Jónsson
Haraldur Þór Jónsson

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna virkjunarleyfis sem Orkustofnun veitti Landsvirkjun vegna Búrfellslundar og telur sveitarfélagið skorta kæruheimild.

Haraldur Þór Jónsson oddviti sveitarfélagsins segir þessa niðurstöðu koma á óvart og valda vonbrigðum. Að mörgu leyti sé nefndin að segja að vilji sveitarfélagið fá skorið úr málinu þurfi að gera það fyrir dómstólum.

Hann segir að sveitarstjórnin muni ræða málið á næstu dögum en líklega verði beðið niðurstöðu í máli Náttúrugriða, sem einnig kærðu virkjunarleyfið til úrskurðarnefndarinnar. » 14