Leyfi Finnur Freyr verður frá vegna veikinda um einhvern tíma.
Leyfi Finnur Freyr verður frá vegna veikinda um einhvern tíma. — Morgunblaðið/Eggert

Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson er kominn í veikindaleyfi hjá félagi sínu Val, en hann þjálfar meistaraflokk karla. Félagið greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gær og skýrði frá því að Finnur yrði frá í einhvern tíma vegna veikindanna. Finnur gerði Val að Íslandsmeistara í annað sinn undir sinni stjórn á síðustu leiktíð.

Jamil Abiad, aðstoðarþjálfari liðsins og þjálfari kvennaliðs Vals, tekur við liðinu í fjarveru Finns.