50 ára Álfhildur ólst upp í Borgum í Þistilfirði en býr í Hafnarfirði. Hún er með meistarapróf í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands og er atvinnulífstengill hjá VIRK starfs­endur­hæfingarsjóði. Áhugamálin eru bækur og útivera.


Fjölskylda Börn Álfhildar eru Eiríkur Ingi, f. 1997, og Jóhanna Dagný, f. 2003. Foreldrar Álfhildar: Eiríkur Kristjánsson, f. 1945, bóndi í Borgum, og Vigdís Sigurðardóttir, f. 1954, d. 2022, bóndi í Borgum.