Elva Hreiðarsdóttir opnaði sýninguna Arkir í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, í gær en hún stendur til og með 20. október. Opið er fimmtudaga til sunnudaga klukkan 14-17. „Verk Elvu eru unnin með fjölbreyttum aðferðum en eiga það sameiginlegt að…
Eitt verka Elvu.
Eitt verka Elvu.

Elva Hreiðarsdóttir opnaði sýninguna Arkir í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, í gær en hún stendur til og með 20. október. Opið er fimmtudaga til sunnudaga klukkan 14-17.

„Verk Elvu eru unnin með fjölbreyttum aðferðum en eiga það sameiginlegt að innihalda pappírsarkir m.a. gerðar af henni sjálfri. Í verkum Elvu veltir hún fyrir sér ýmsu sem hefur haft áhrif í lífinu almennt persónulega og skrásetur á arkir í ýmsum útfærslum,“ segir í tilkynningu.