Hrollur Hvað gerir móðir í rólegu úthverfi þegar sjálfur myrkrahöfðinginn birtist óvænt í glerinu á örbylgjuofninum hennar og tómatsósan þar inni springur í loft upp? Nú, hún hefur áhyggjur. Eitthvað torkennilegt er á seyði og böndin berast að…
Julie Bowen leikur í Hysteria!
Julie Bowen leikur í Hysteria! — AFP/Monica Schipper

Hrollur Hvað gerir móðir í rólegu úthverfi þegar sjálfur myrkrahöfðinginn birtist óvænt í glerinu á örbylgjuofninum hennar og tómatsósan þar inni springur í loft upp? Nú, hún hefur áhyggjur. Eitthvað torkennilegt er á seyði og böndin berast að nýstofnaðri þungarokkshljómsveit skipaðri unglingum, Deth Krunch. Er hún að dufla við djöfulinn og hrinda af stað alls kyns hryllingi? Þannig liggur landið í nýjum bandarískum sjónvarpsmyndaflokki, Hysteria!, sem gerist seint á níunda áratugnum. Með helstu hlutverk fara Julie Bowen úr Modern Family og Anna Camp úr Pitch Perfect. Nálgast má flokkinn á efnisveitunni Peacock frá og með 18. október.