Könnun Dvínandi ferðaáhugi er á meðal Bandaríkjamanna.
Könnun Dvínandi ferðaáhugi er á meðal Bandaríkjamanna. — Morgunblaðið/Eggert

Samkvæmt nýbirtri könnun Ferðamálaráðs Evrópu (ETC) um ferðavilja á tímabilinu frá september til desember 2024 virðist heldur færra fólk hyggja á ferðalög á umræddu tímabili eða einungis um 58% svarenda. Það reiknast sem 4% samdráttur á milli ára.

Af þeim löndum sem könnunin tók til eru þrjú þeirra á meðal mikilvægustu markaða Íslands, þ.e. Bandaríkin, Kanada og Kína.

Ferðaáform Bandaríkjamanna dragast saman umtalsvert á milli ára, sem er áhyggjuefni fyrir Íslendinga, enda okkar stærsti markaður. Þannig segjast einungis 23% hyggja á ferðlög til Evrópu á tímabilinu september til desember en var 41% á sama tímabili í fyrra.

„Það gott hafa könnunina til hliðsjónar þegar spáð er í spilin um hvað gæti verið fram undan. Könnunin sýnir umtalsvert minni ferðavilja

...