Hund­ur sem sló í gegn á in­ter­net­inu fyrir ári, þegar hann valdi nafn á vænt­an­leg­an son eig­enda sinna, er aft­ur kom­inn í sviðsljósið. Það er vegna þess að Frankie litli tók fyrstu skref­in á dög­un­um. Beau og Frankie eru óaðskilj­an­leg­ir, en foreldrar Frankies segja þá vera sem bræður. Í mynd­bandi sem þau deildu á TikT­ok má sjá hvernig þau ákváðu að geyma minn­ing­una um fyrstu skref Frankies með því að festa fót­spor­in á blað. Þau vildu þó ekki skilja „stóra bróður“ út und­an, eins og sjá má í mynd­band­inu sem yfir 30 millj­ón­ir hafa bráðnað yfir. Nánar á K100.is.