Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson

Kennarar í Tónlistarskóla Ísafjarðar, sem eru í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, samþykktu í gær að boða til verkfalls.

Verkfallið er boðað 29. október og var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, en atkvæðagreiðslu lauk um miðjan dag í gær. Kjörsókn var rúmlega 83%.

Fram kemur á vef Kennarasambands Íslands að verkföll hafi þá verið boðuð í níu mismunandi skólum. Verkföll eru áformuð 29. október í níu skólum; fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla, hafi samningar ekki náðst, segir á vef sambandsins.

Þar segir enn fremur að ríkissáttasemjari hafi boðað til fundar á þriðjudag og mæti þá viðræðunefnd Kennarasambandsins, sem er skipuð formönnum aðildarfélaganna sjö og formanni KÍ, til fundar með samninganefndum sveitarfélaga

...