Hvítur á leik.
Hvítur á leik.

1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 Rbd7 4. f4 e5 5. Rf3 Be7 6. Bc4 0-0 7. dxe5 dxe5 8. fxe5 Rg4 9. e6 Rde5 10. exf7+ Kh8 11. Dxd8 Bxd8 12. Rxe5 Rxe5 13. Bb3 Bh4+ 14. g3 Be7 15. Be3 Bg4 16. h3 Bh5 17. 0-0 Bxf7 18. Bxf7 Rxf7 19. Had1 Bd6 20. Kg2 a6 21. b3 Kg8 22. Hd5 Hfe8 23. Bc5 Be5 24. Bd4 He7

Staðan kom upp í efstu deild, úrvalsdeild, fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla. Nökkvi Sverrisson (2.066) hafði hvítt gegn Leifi Inga Vilmundarsyni (2.046). 25. Hxf7! og svartur gafst upp. VignirVatnar.is heldur hraðskákmót í dag kl. 17.00 í Lágmúla 5 (Snooker Pool). Um er að ræða fyrsta mótið í mótaröð sem haldið er í samstarfi VignirVatnar.is og Snooker Pool. Tefldar verða níu umferðir og nokkuð vegleg verðlaun í boði, meðal annars fyrir þá sem ná að leggja Vigni Vatnar að velli!