60 ára Jóhann fæddist í Reykjavík og ólst upp í Fossvoginum. Á menntaskólaárunum fór hann að vinna fyrir tilviljun í Íslensku óperunni og vann þar í fjölda ára. Eftir 23 ár í Óperunni fór hann að vinna m.a. í Hörpu, Tjarnarbíói o.fl. og hefur síðan unnið í Þjóðleikhúsinu frá 2019. „Það má segja að það er mikill ævintýraheimur að vinna í leikhúsinu og mjög gaman.“ Helstu áhugamál Jóhanns eru gönguferðir og ferðalög, veiði og golf. Jóhann á á dótturina Sölku Þorgerði, f. 2007. Hún er í Kvennaskólanum og í framhaldsnámi í dansi.