Þorbjörg Þóroddsdóttir fæddist 23. ágúst 1938. Hún lést 1. október 2024.

Útför hennar fór fram 11. október 2024.

Þorbjörg fyrrverandi tengdamóðir mín er látin. Ég mun minnast hennar með söknuði og þakklæti í hjarta. Hún var mér ávallt yndisleg. Ég var unglingsstelpa þegar við hittumst fyrst og hún mætti mér strax með hlýju. Öll árin sem ég bjó erlendis sendi Þorbjörg alltaf kveðju á afmælinu mínu og á jólunum og þegar við hittumst heima á Íslandi spurði hún eftir strákunum mínum í Ameríku eins og hún ætti í þeim sjálf. Börn okkar Þórodds, sem eru orðin fullorðin, hafa átt láni að fagna að hafa ömmu sína með í för inn í sín fullorðinsár. Það er dýrmætt veganesti í lífinu fyrir ungt fólk að kynnast góðu fólki, og Þorbjörg Þóroddsdóttir var ein af þeim bestu.

Elsku Þorbjörg, ég þakka þér innilega

...