Billy Crystal er í grafalvarlegu hlutverki í spennuþáttunum Before.
Billy Crystal er í grafalvarlegu hlutverki í spennuþáttunum Before. — AFP/Kevin Winter

Tryllir Billy gamli Crystal er enn í fullu fjöri og í flunkunýjum spennumyndaflokki, Before, leikur hann barnasálfræðinginn Eli Adler sem er að jafna sig eftir að eiginkona hans fyrirfór sér. Þá fer að sækja tíma hjá honum ungur piltur sem er í einhverju dularfullu sambandi við fortíð Elis sjálfs. Judith Light, Rosie Perez og Jacobi Jupe koma einnig við sögu en flokkurinn kemur inn á veituna Apple Tv+ 25. október.