Sambíóin, Smárabíó og Laugarásbíó Joker: Folie á Deux ★★··· Leikstjórn: Todd Phillips. Handrit: Todd Phillips og Scott Silver. Byggt á persónum úr teiknimyndasögum DC Comics. Aðalleikarar: Joaquin Phoenix, Lady Gaga, Brendan Gleeson, Catherine Keener og Zazie Beetz. Frumsamin tónlist: Hildur Guðnadóttir. Bandaríkin, 2024. 138 mín.
Leiðindi Úr Joker: Folie á Deux. Lady Gaga og Joaquin Phoenix í hlutverkum Harley Quinn og Jóker.
Leiðindi Úr Joker: Folie á Deux. Lady Gaga og Joaquin Phoenix í hlutverkum Harley Quinn og Jóker.

kvikmyndir

Helgi Snær Sigurðsson

Framhald hinnar vinsælu kvikmyndar Joker frá árinu 2019, Joker: Folie á Deux eða Jóker: Tvö sturluð, er loksins komin í bíó en veldur því miður vonbrigðum. Eftir miklar vinsældir fyrri myndar, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta leikara (Joaquin Phoenix) og bestu frumsömdu tónlist (Hildur Guðnadóttir), auk fjölda annarra, átti maður von á meiru. Leikstjórinn er líka sá sami, Todd Phillips, og líka aðalleikarinn, Joaquin Phoenix. Ekki eru aðrir leikarar svo af verri endanum, auk Phoenix þau Lady Gaga, Brendan Gleeson, Katherine Keener og Steve Coogan. Hvað fór úrskeiðis?

Teiknimynd gefur tóninn

Myndin hefst með upprifjun á því sem gerðist í lok síðustu myndar en sú upprifjun er skringilega framsett í

...