Helga Marteinsdóttir fæddist 15. ágúst 1945. Hún lést 29. september 2024.

Útför hennar fór fram 11. október 2024.

Elsku besta amma Helga.

Það er skrítið að hugsa til þess að nú sért þú ekki lengur hjá okkur og að við munum aldrei geta búið til fleiri minningar með þér.

En þeim fallegu stundum sem við áttum saman munum við aldrei gleyma, og munu þær alltaf veita okkur hlýju og gleði.

Til dæmis öll sunnudagsmatarboðin, huggulegu kaffihúsaferðirnar okkar, Veiðivatnaferðirnar og tíminn okkar saman í fallegu sveitinni þinni, Köldukinn. Við munum líka eftir því þegar þú borðaðir alltof mikið af döðlum og þú prumpaðir alveg svakalega af því. Eða þegar þú fórst í hlátursköst með okkur og við hlógum enn meira þegar maginn þinn fór

...