Julian Assange nýtur nú frelsisins heima í Ástralíu.
Julian Assange nýtur nú frelsisins heima í Ástralíu. — AFP/Frederick Florin

„Hann var ekki með í ráðum en veit af þessu,“ segir ástralska leikritaskáldið Patricia Cornelius um verk sitt Sannleikur eða Truth sem fjallar um Julian Assange, stofnanda WikiLeaks. Frumsýning er fyrirhuguð í Malthouse-leikhúsinu í Melbourne í febrúar næstkomandi. Að sögn Cornelius var það með ráðum gert að halda Assange fyrir utan handritsvinnuna, hún vildi verja sjálfstæði sitt. Sannleikur fjallar um líf og störf Assange og í verkinu veltir höfundur fyrir sér frjálsu flæði upplýsinga, tilhneigingunni til að þagga niður í uppljóstrurum og öðru sem snýr að starfsemi WikiLeaks. Einnig er komið inn á dvöl Assange í sendiráði Ekvador í Lundúnum og fangavist hans í sömu borg áður en hann komst að samkomulagi við bandarísk stjórnvöld og gat á ný um frjálst höfuð strokið. Ekki liggur fyrir hvort Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, er persóna í verkinu.

...