Í Indlandsför í september 2024 komst ég að því, hversu lítið ég vissi um fjölmennasta ríki heims og vænlegan bandamann Vesturveldanna gegn öxulveldunum ágengu (Kína, Rússlandi, Íran og Norður-Kóreu). Breska ríkið tók stjórn Indlands úr höndum Austur-Indíafélagsins árið 1858, en hreyfði ekki við hinum mörgu furstadæmum, þar sem um þriðjungur Indverja bjó. Árin milli stríða var stefnt að heimastjórn. Bretar og raunsæir Indverjar unnu að því að Indland yrði ríkjasamband með sameiginlegar varnir, utanríkisstefnu og gjaldmiðil, en hver eining með fótfestu í sögunni stjórnaði sér að öðru leyti sjálf eftir eigin hefðum og venjum. Var það eðlilegt því Indverjar skiptust í ótal hópa eftir málum, uppruna og trúarbrögðum. Í norðurhlutanum var skiptingin skýrust milli hindúa, sem töluðu hindi, og múslima, sem töluðu urdu, en þótt málin séu náskyld eru þau skrifuð með ólíku letri.

...