Tónleikar Tónlistarkonan GDRN kemur fram á tónleikum kvöldsins.
Tónleikar Tónlistarkonan GDRN kemur fram á tónleikum kvöldsins.

Listahátíðin Rökkvan er haldin í göngugötunni á Garðatorgi í Garðabæ í dag, laugardag, milli kl. 14 og 23. „Tónlist verður í fyrirrúmi á hátíðinni en einnig munu gestir njóta listasýningar í Betrunarhúsinu og verður lista- og handverksmarkaður reistur á torginu. Hátíðin nær hápunkti með tónleikum þar sem Kusk og Óviti, KK, Jói Pé og félagar og GDRN munu stíga á svið,“ segir í viðburðarkynningu, en þess má geta að tónleikarnir hefjast kl. 19.30. Aðgangur á Rökkvuna er ókeypis en hátíðin er á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Allar nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vefnum gardabaer.is.