Benjamín Axel Árnason fæddist í Bandaríkjunum 13. desember 1961. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 6. október 2024.

Hann var sonur hjónanna Jónu Sigurbjargar Óladóttur, f. 5.5. 1944, og Árna Jónssonar, f. 11.9. 1938, d. 6.2. 2000. Benjamín var elstur fimm bræðra. Hinir eru Leifur, f. 1962, Eiríkur, f. 1963, Jón, f. 1967 og Þórir, f. 1969.

Benjamín skilur eftir sig þrjú uppkomin börn: 1) Birnu Dís f. 1986, eiginmaður hennar er Brimar Aðalsteinsson og eiga þau tvö börn, Bjarka Stein, f. 2020, og Iðunni Sjöfn, f. 2023. 2) Bjarka Dór, f. 1991. 3) Dagnýju Björt, f. 1995.

Útför Benjamíns fór fram í kyrrþey 11. október 2024.

Kær vinur og góður skátabróðir er farinn heim eins og við skátarnir segjum jafnan. Ég minnist Benjamíns sem mjög góðs

...