Að líta e-ð smáum augum þýðir að telja e-ð vera lítilvægt: „Hann leit innrásina í Úkraínu smáum augum, sagði að svona lagað væri alltaf að gerast og væri bara mannlegt.“ Líka að meta e-ð lítils: „Ég taldi mig hafa lagt mikið af…

Að líta e-ð smáum augum þýðir að telja e-ð vera lítilvægt: „Hann leit innrásina í Úkraínu smáum augum, sagði að svona lagað væri alltaf að gerast og væri bara mannlegt.“ Líka að meta e-ð lítils: „Ég taldi mig hafa lagt mikið af mörkum en dómnefndin leit framlag mitt smáum augum og ég fékk ekki stöðuna.“