Þrjú Andrea Jacobsen með boltann í leiknum á laugardag. Hún skoraði þrjú mörk fyrir Blomberg-Lippe sem komst örugglega áfram og mætir Dijon.
Þrjú Andrea Jacobsen með boltann í leiknum á laugardag. Hún skoraði þrjú mörk fyrir Blomberg-Lippe sem komst örugglega áfram og mætir Dijon. — Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Þýska Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er komið í úrslitaumferð um sæti í Evrópudeild kvenna í handbolta eftir að hafa slegið út Rauðu stjörnuna frá Serbíu í seinni leik liðanna í fyrri umferð umspilsins í Belgrad á laugardagskvöld.

Rauða stjarnan vann leikinn á laugardag, 28:26. Það skipti hins vegar litlu máli því fyrri leikurinn endaði með 15 marka sigri þýska liðsins, 39:24, og Blomberg-Lippe vann því einvígið samanlagt 65:52.

Íslenska landsliðskonan Andrea Jacobsen lét að sér kveða með Blomberg-Lippe í leiknum og skoraði þrjú mörk. Díana Dögg Magnúsdóttir, samherji hennar í íslenska landsliðinu, komst ekki á blað að þessu sinni, þar sem hún fékk þungt höfuðhögg snemma leiks og skurð á bæði auga og nefi. Lék hún því aðeins fyrstu sjö mínúturnar.

...