Útitónleikar píanistans Emils Reinerts í Los Angeles í haust tóku óvænta stefnu en at­b­urður­inn náðist á mynd­band og hef­ur vakið heims­at­hygli. Á meðan Emil spilaði gekk þriggja ára stúlka til hans með ein­falt er­indi. „Get­urðu spilað „My Heart Will Go On“ með Cel­ine Dion?“ sagði hún mjóróma. Emil varð glaður við bón­inni, en hann átti ekki von á því að sú stutta myndi syngja og stela sen­unni al­gjör­lega. Það gerði hún svo sann­ar­lega og bræddi hjörtu allra viðstaddra sem klöppuðu af krafti við þennan óvænta flutning. Sjáðu myndbandið á K100.is.