Tumi Steinn Rúnarsson átti góðan leik með Alpla Hard er liðið hafði betur gegn Barnbach, 30:26, í efstu deild Austurríkis í handbolta á föstudag. Tumi Steinn skoraði fimm mörk fyrir Alpla Hard en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið

Tumi Steinn Rúnarsson átti góðan leik með Alpla Hard er liðið hafði betur gegn Barnbach, 30:26, í efstu deild Austurríkis í handbolta á föstudag. Tumi Steinn skoraði fimm mörk fyrir Alpla Hard en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Alpla Hard er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki.

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson héldu uppteknum hætti í sterkum útisigri Magdeburg á Flensburg, 29:27, í efstu deild þýska handboltans í Flensburg á laugardag. Ómar Ingi skoraði tíu mörk og gaf tvær stoðsendingar en Gísli Þorgeir skoraði fjögur mörk og gaf fimm stoðsendingar. Magdeburg er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki, fjóra sigra og eitt tap.

Brynjar Kristmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Hann hefur

...