Jarþrúður Williams fæddist í Reykjavík 29. maí 1943. Hún lést á Hrafnistu 6. október 2024.

Foreldrar hennar voru Guðrún Áslaug Guðmundsdóttir Boncoddo, f. 31.10. 1925, d. 24.2. 2019, og Harvey Williams. Guðrún giftist John C. Boncoddo, f. 23.12. 1917, d. 20.7. 2010. Hálfsystkini Jarþrúðar eru John, f. 8.4. 1946, Maureen, f. 17.5. 1951, og Robert, f. 11.11. 1953.

Jara giftist Hilmari Bernburg (látinn 2017) en þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Rúnar, f. 11.7. 1962, giftur Þóru Svanbergsdóttur, f. 13.4. 1966. Dætur þeirra eru Ragnheiður Jara og Sylvía Rut. Ragna Jara er gift Guðmundi Þorsteini Bergsyni og börn þeirra eru Jónína Jara, Rúnar Berg og Elsa Þóra. Sylvía Rut er trúlofuð Freysteini Valbjörnssyni og eiga þau nýfæddan son sem fæddist 10. október. 2) Guðrún Hanna, f. 2.6. 1967, gift Erni Héðinssyni, f. 28.6. 1964. Synir þeirra eru

...