Einstakur viðburður í íslenskri handboltasögu verður í Kaplakrika í kvöld þegar bæði FH og Valur leika þar heimaleiki í Evrópudeild karla. Valur mætir Porto frá Portúgal klukkan 18.15 og FH mætir Gummersbach frá Þýskalandi klukkan 20.30. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með erlendu liðunum og Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar lið Gummersbach.