Kátur Jamie Leweling fagnar eftir að hafa skorað markið mikilvæga.
Kátur Jamie Leweling fagnar eftir að hafa skorað markið mikilvæga. — AFP/Odd Andersen

Jamie Leweling reyndist hetja Þjóðverja í sigri á Hollendingum, 1:0, í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu í München í gærkvöld. Sigurmark hans kom á 64. mínútu en í fyrri hálfleik skoraði hann mark sem var dæmt af. Þjóðverjar eru komnir með tíu stig, fimm fleiri en Holland og Ungverjaland sem eru í næstu sætum. Liverpool-maðurinn Dominik Szoboszlai skoraði bæði mörk Ungverjalands í útisigri á Bosníu, 2:0.