Árið er 2024. Í gær þurftum við að bíða með öndina í hálsinum til klukkan tvö til að fá fullvissu um hvort hægt væri að spila gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum. Ekki í neinum vetrarkulda eða snjó, eða vegna þess að haustlægð væri á leiðinni yfir landið

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Árið er 2024. Í gær þurftum við að bíða með öndina í hálsinum til klukkan tvö til að fá fullvissu um hvort hægt væri að spila gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum.

Ekki í neinum vetrarkulda eða snjó, eða vegna þess að haustlægð væri á leiðinni yfir landið. Bara vegna þess að hitastigið fór niður fyrir frostmark í fyrrinótt og völlurinn fraus.

Árið var 1985. Fram var komið í 2. umferð í Evrópukeppni bikarhafa og lék gegn Rapid Vín frá Austurríki á Laugardalsvellinum 7. nóvember.

Völlurinn var hvítur af snjó og háll eftir því. En Framarar sigruðu 2:1 með vítaspyrnu Guðmundar Torfasonar undir lokin. Þetta slapp fyrir horn.

Árið var 2008. Ísland

...