Erla Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 14. janúar 1944. Hún lést á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum 23. september 2024.

Foreldrar Erlu voru Einar Jens Guðmundsson vélstjóri, f. 20. maí 1909, d. 12. apríl 1961, og Snæbjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 13. október 1914 d. 1. mars 2006. Systkini: Sigrún Lilja Bergþórsdóttir, f. 10. júlí 1933, d. 22. desember 2014. Valur Heiðar Einarsson, f. 19. júlí 1942. Ólafur Kolbeinn Einarsson, f. 10. júlí 1947, d. 12. desember 1971. Guðrún Björk Einarsdóttir, f. 9. maí 1956, d. 21. janúar 1983. Steinþór Einarsson, f. 4. mars 1959.

Eiginmaður Erlu var Valgeir Jónasson húsasmíðameistari, f. 2. febrúar 1944, d. 7. mars 2016. Dætur þeirra eru: 1) Anna Margrét, f. 16. apríl 1964. Eiginmaður hennar er Stefán G. Pálsson. Börn hennar eru Erla Björk Höskuldsdóttir, f. 1984, Erling Birkir Höskuldsson, f. 1990, Jóhanna

...