2023 Hér eru Björn Vigfús og Sjöfn með börnum sínum Degi Erni, Arnóri Daða og Sunnu á fermingardegi Sunnu.
2023 Hér eru Björn Vigfús og Sjöfn með börnum sínum Degi Erni, Arnóri Daða og Sunnu á fermingardegi Sunnu.

Björn Vigfús Metúsalemsson fæddist 15. október 1974 í Reykjavík og ólst upp í Hraunbæ 22 til sex ára aldurs og var yngstur þriggja barna foreldra sinna. Þegar hann var sex ára flutti fjölskyldan í hús sem faðir hans byggði í Deildarási 6 og þar bjó fjölskyldan allar götur síðan.

„Það var mjög skemmtilegt að vera krakki í þessu hverfi. Það voru allir að byggja og húsbyggingar á mismunandi stigum út um allt. Svo var sveitabærinn Bót stutt frá þar sem bóndinn var með hesta og svo Elliðaárnar og allt umhverfið var algjör ævintýraheimur fyrir okkur strákana í hverfinu.“

Björn gekk í Árbæjarskóla og segir að þrátt fyrir að hafa prófað allar boltaíþróttir þá hafi hann ekki fundið sig í þeim. „En ég fann mína íþrótt þegar ég fór að æfa karate tólf ára gamall í Þórshamri. Þar fann ég áhugann og ég æfði þar alveg til 18 ára aldurs. Ég tók

...