Lögregluyfirvöld í Kaliforníu sögðu í gær að þau hefðu látið hinn 49 ára gamla Vem Collins, sem handtekinn var með haglabyssu og hlaðna skammbyssu á laugardag, lausan úr haldi gegn tryggingu. Collins var í fyrstu grunaður um að hafa ætlað að sýna…
Donald Trump
Donald Trump

Lögregluyfirvöld í Kaliforníu sögðu í gær að þau hefðu látið hinn 49 ára gamla Vem Collins, sem handtekinn var með haglabyssu og hlaðna skammbyssu á laugardag, lausan úr haldi gegn tryggingu. Collins var í fyrstu grunaður um að hafa ætlað að sýna Donald Trump forsetaframbjóðanda repúblikana banatilræði, en Trump hélt kosningafund í Coachella á laugardag sem Collins ætlaði að sækja.

Chad Bianco, fógeti í Riverside-sýslu, sagðist á sunnudag sannfærður um að menn sínir hefðu komið í veg fyrir þriðja banatilræðið gegn Trump, en Collins var með nokkur vegabréf í fórum sínum og bifreið hans var með heimatilbúin bílnúmeraskilti. Collins sagðist í gær vera stuðningsmaður Trumps og að honum hefði ekki stafað nein hætta af sér.