Birgir Þórarinsson
Birgir Þórarinsson

Alþingismennirnir Birgir Þórarinsson og Bjarni Jónsson eru ásamt 74 þingmönnum Evrópuráðsþingsins á svörtum
lista í Aserbaísjan undir yfirskriftinni „personae non gratae“. Af þeim sökum geta þeir ekki sótt loftslagsráðstefnuna í Bakú 11. til 22. nóvember næstkomandi.

Þessi ákvörðun stjórnvalda í Aserbaísjan kemur í kjölfar þess að í janúar síðastliðnum ákvað Evrópuráðið í Strassborg að staðfesta ekki kjörbréf sendinefndar Aserbaísjan vegna mannréttindabrota heima fyrir og skorts á lýðræði. Í landinu eru yfir 300 pólitískir fangar og fjöldi blaðamanna í fangelsi. Með því að staðfesta ekki kjörbréfin var Aserum bannað að sækja fundi Evrópuráðsins.

Birgir segir það fáheyrt að þingmenn á Alþingi Íslendinga séu lýstir „personae non gratae“ af öðru ríki. „Alþingi ber að mótmæla

...