„Við erum með hæstu áfengisgjöld í heimi. Við erum með hærri áfengisgjöld á bjór en léttvíni. Af hverju erum við ekki að skoða þetta? Ég set spurningarmerki við af hverju áfengi er jafn dýrt á Íslandi og raun ber vitni,“ segir Andri Þór…
Andra blöskrar hve há áfengisgjöld eru og að þau séu hærri á bjór en víni.
Andra blöskrar hve há áfengisgjöld eru og að þau séu hærri á bjór en víni. — Morgunblaðið/María Matthíasdóttir

„Við erum með hæstu áfengisgjöld í heimi. Við erum með hærri áfengisgjöld á bjór en léttvíni. Af hverju erum við ekki að skoða þetta? Ég set spurningarmerki við af hverju áfengi er jafn dýrt á Íslandi og raun ber vitni,“ segir Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar, en hann var gestur í Dagmálaþætti sem birtist á mbl.is í dag.

Þar var rætt um rekstur Ölgerðarinnar, sókn á Þýskalandsmarkað og áherslur fyrirtækisins á sviði sjálfbærni.

Ölgerðin skilaði uppgjöri í síðustu viku. Hagnaður hennar eftir skatta á fyrstu sex mánuðum fjárhagstímabilsins var 1,4 milljarðar króna samanborið við 2,2 milljarða króna á fyrra ári. Fjárhagstímabilið sem um ræðir er 1. mars til 31. ágúst.

Haft er eftir Andra í tilkynningu vegna uppgjörsins að minni neysla erlendra ferðamanna og það aðhald sem

...